Vertu Velkomin/nn
17.02.2007 16:01:36 / valligolf

Fréttir frá Lux

Endilega kíkið á www.vallilux.bloggar.is

 kv

Valli


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 18:33:19 / valligolf

Kominn tími á blogg!

Þokkalega kominn tími á blogg, það hefur nú ekki mikið verið að gerast síðustu vikur fyrir utan þetta venjulega, vinna og æfa og síðan keppir maður um helgar.

Um helgina grilluðum við kennararnir saman og var mikið fjör á hópnum, ég, binni og simmi fórum síðan að veiða á laugardeginum, úfff, ég er of óþolinmóður fyrir svona veiðidæmi, við vorum í rúma tvo tíma og ég varð ekki einu sinni var, ég gafst þá bara upp og fórum í bústaðinn til Simma, horfðum á Ísland-Svíþjóð, sem var snilld, grilluðum og fórum í pottinn.

 Kíktum síðan á sunnudeginum á krakkana úr GKG sem voru að keppa á Hellu. Þau stóðu sig bara mjög vel. Þannig að þetta var bara virkilega góð helgi. Þá var komið að því að vinna, en ég er að kenna 10 og 11 ára strákum golf, það er mikið fjör enda flestir vel virkir 8|. Síðan eyðir maður bara restinni af deginum í að æfa sig, vá hvað það er samt búið að vera mikið skítaveður síðustu vikur, stundum öfunda ég fólk þegar að það vinnur inni. Vonandi fer það bara að lagast.

Núna er HM á fullu, ég er ekki með sýn hérna heima þannig að maður kíkir oftast upp í golfskála til þess að horfa á leiki. Brasilía, Argentína eða Spánnn eiga eftir að vinna þessa keppni. Snilldar bolti í gangi.

Jæja segi þetta gott í bili,

kvittið ef þið eruð að skoða þetta, maður nennir ekki að skrifa ef enginn les þetta.

kv Valli


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 19:21:44 / valligolf

Allt að gerast

Þá er ég kominn heim, skrapp í viku í æfingaferð með GKG til Þýskalands, nánar tiltekið til Potsdam. Þar spiluðum við og æfðum, og spiluðum og æfðum í eina viku, kíktum síðan aðeins í Berlín, sumir versluðu meira en aðrir og hinir voru bara á röltinu og skoða sig um.

Markt merkilegt var að gerast þessa daga á meðan að við vorum úti. Úrslitin í Champions leage og Eurovision, og var mikil stemning í gangi og mikið verið að veðja upp á peninga, því miður veðjaði ég á Svíþjóð og vann ekki neitt. Annars var bara mjög góður stemmari í hópnum og var lokakvöldið alger snilld þar sem að menn tóku upp gítar og var haldið gott íslenskt partý með gítarglamri og söng, eða allavega tilraun til söngs. Síðan var haldið heim á leið, á flugvellinum í Berlín hittum við síðan MK-inga sem að voru í Þýskuferð, því miður voru þau á undan okkur í chek in og fengu öll neyðarútgöngusætin þannig að ég sat með hnén í bakinu á næsta manni fyrir framan mig á leiðinni heim:evil: það hefur stundum sína ókosti að hafa langar lappir.

Fékk einkunnir í síðustu viku, náði öllu og var með fína meðaleinkunn. Það er fínt að þurfa ekki að fara aftur suðreftir í skóla, því ég er að fara í vikunni að sækja um í MK og ætla að reyna að klára fyrir jól, hafa það síðan gott eftir áramót. Annars er golfið farið að taka mikinn tíma, ég fer að byrja að vinna í næstu viku, ég verð að kenna upp á velli eins og síðustu sumur, það er fínt.

Segi þetta gott í kvöld, væri nú til í að sjá einhver comment. Engin comment í síðustu þremur færslum, úff maður fer nú bara að hætta þessu.

kv Valli


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 21:42:28 / valligolf

ahhhhhhhhhh

já takk fyrir, ég er búinn í prófum!!!!

Þvílík þægindatilfinning sem kom yfir mig þegar að ég gekk útúr skólanum í dag, alveg erfitt að lýsa fílingnum þegar maður klárar próf. Einhver svona léttir bara. Allavega í síðasta skipti sem að ég fer í FS, ætla aftur í MK næsta haust, þetta hefur verið athyglisvert ár þarna suðurfrá, mjög gott golflega séð, kynntist nýju fólki og svona, hugsa samt að það sé töluvert skemmtilegara í MK, tala nú ekki um að þurfa að keyra þangað suðreftir daglega.

En eftir prófið var lítið frí því ég fór bara beint að vinna upp á velli, er búinn að vera að líma heimilisföng á umslög, 1500 stykki, vá þetta er án efa þurrasta vinna sem að ég hef unnið á ævinni, en þetta gefur pening og það er það sem skiptir máli ;)

Vá hef ekki hugmynd hvað ég á að skrifa um..... Já það styttist í þýskalandsferðina, aðra ferðina á þessu ári. Ég fer á þriðjudagsmorgun, og verð í eina viku að æfa og æfa meira, undirbúa sig fyrir tímabilið sem byrjar í lok maí.

Ég fór líka að keppa síðasta sunnudag, á leirunni, spilaði skítsæmilega, púttaði rosalega illa, þannig að það var ekki  séns að skora vel, spilaði á 81 með 38 pútt.

Nóg komið í bili, nú er bara að skemmta sér yfir því að vera búinn í prófum!!!

kv Valli 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 15:52:36 / valligolf

Skólinn alveg að klárast

Einmitt! þá er maður kominn á fullt í prófastúss, tók tvö í morgun. Landafræði og Íþróttafræði, gekk bara mjög vel, það er samt svo langt síðan maður hefur skrifað eitthvað að viti(með penna) þannig að í seinna prófinu, sem var Landafræðin var ég alveg að drepast í úlnliðnum, en það reddaðist að lokum.

Þá eru bara 4 próf eftir, tvö stærðfræðipróf, eitt eðlisfræði og eitt efnafræði, engin helvítis skrif þar, bara útreikningar, það er fínt.

Brynjar bróðir stendur líka í ströngu þessa dagana, hann er að taka samræmdu prófin, mikið er ég feginn að það er búið að fella niður samræmd próf í menntaskóla:o hjúkkett.

Síðan fer bara að styttast í æfingaferðina út, bara 12 dagar, það verður snilld, það er alltaf svo mikil stemning í svona félagsferðum, allir í góðum fíling.

Var líka að lesa eina góða grein á fótbolti.net áðan um markmann sem að fattaði ekki að það væri búið að flauta leikinn af vegna þoku! Hann hélt bara að hans lið væri í sókn og síðan benti einhver áhorfandi honum á að það væri búið að flauta leikinn af....alger snilld http://www.fotbolti.net/fullStory.php?id=34882

Er samt að pæla hvort maður eigi að fara í mót á sunnudaginn, eða vera bara heima og læra??? Það er að vísu Eðlisfræðipróf á mánudeginum.....8| En maður má ekki vera alltaf skynsamur!!

kv Valli


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 20:27:49 / valligolf

Sumarið að koma?

Jebba, geðveikt veður í dag, loksins kominn tveggja stafa tölur í hitanum. Það fer bara að styttast í sumarið!!

Annars er búið að vera ruglað að gera síðustu vikuna, próf eftir próf, nóg að gera, síðan er komin löng helgi, og ætli hún verði ekki notuð til að læra smá, annars bara skemmta sér.

Fór í síðustu viku að sækja Sinfjötla hjá Hirti, En fyrir þá sem ekki vita að þá er Sinfjötli skólablaðið í MK, Blaðið var alveg 134 blaðsíður og í harðkápu, það veglegasta sem gefið hefur verið út, en ég skrifaði einhverjar þrjár greinar í blaðið, svona til að hjálpa til eftir að hafa farið í FS.

Síðan taka nú prófin bara við í næstu viku, byrja fimmtudaginn 4. maí og er búinn viku seinna, 6 próf í alls.

Hef þetta bara stutt í dag,

kv Valli - þið eruð ekki að standa ykkur í kommentum 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 15:17:16 / valligolf

Ferðasaga

Já þá er ég kominn heim og það eina sem að mætir manni eru haglél, rok og skítakuldi, og þá hugsar maður bara um það af hverju í andsk. maður var að koma heim.:S

En ég ætla kannski að skrifa um það helsta sem gerðist í ferðinni. Keppnisferðin til Þýskalands átti nú bara að standa í eina viku en það breyttist nú heldur betur. Eftir mótið, sem gekk ágætlega, allavega seinni hringurinn, skruppum við Óli Már til Bigga í mat, en þá var síðan ákveðið að ég myndi vera í viku í viðbót og æfa með Bigga. Þar sem að ég hafði svosem ekkert merkilegt að gera restina af páskafríinu mínu, þannig að það tóku bara við æfingar við ágætis aðstæður og síðan einhverjar keppnir, og ég segi það að ég hef örugglega aldrei tapað eins mörgum keppnum á stuttum tíma, en sem betur fer vorum við alltaf að keppa upp á að pússa skó eða kylfur, annars hefði ég orðið blankur. En þetta er allt að koma, sveiflan er að verða góð, þannig að maður þarf bara að komast í spilaform(það er ekki að gerast hérna heima í veðrinu eins og það er núna) og þá verður maður orðinn sáttur.

Annars hafði maður það bara gott, stundum fórum við út að borða og í bíó, síðan var mamma hennar Betu í heimsókn og þær tvær geta sko eldað nammi namm, maður var bara í góðum pakka þarna úti. Einnig voru þarna nokkrar íslenskar stelpur, að vinna sem aupair hjá íslendingunum þarna úti og hjá Bigga meðal annars, og fór maður með þeim nokkrum sinnum út á lífið, en í Luxembourg er alveg massíft djamm á miðvikudögum, sem er frekar spes.

Að lokum var síðan tekin ein góð verslunarferð til Frakklands þar sem að veskið fékk aðeins að finna fyrir því. En þá var einmitt komið alveg geggjað veður og tómi til að fara heim. Bara 20 stiga hiti og sól og tími til að koma sér heim í kuldann, ekki alveg nógu gott.

Þessi ferð heppnaðist bara í alla staði mjög vel og eiga þau Biggi og Beta eiga skilið miklar þakkir fyrir að bjóða mér að vera lengur, sérstaklega vegna þess að ég var ekki eini gesturinn á þessum tíma.

Síðan kom ég heim seinni partinn á föstudaginn, og þá fór ég beint að vinna við herrakvöld GKG, þar var bara mjög góð stemmning, Stebbi og Eyfi í góðum fíling og síðan þeir Sjonni og Pálmi Hjartars, gaman að vinna við svona, alveg þangað til að maður þarf að ganga frá, var í allan morgun að vaska upp og þrífa, hehe.

En þá tekur skólinn bara við og það er bara ein skólavika eftir og síðan dettur maður í próf. Mikið verður þæginlegt að vera búinn í prófum. Þá þarf maður ekki að hafa áhgyggjur af neinu. Og fljótlega eftir prófin fer ég aftur til Þýskalands að æfa þannig að maður hefur nóg að gera.

Segi þetta gott í bili

kv Valli


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 16:51:58 / valligolf

Lux

já það breyttist heldur betur planið frá upphafi, fyrst ætlaði ég bara að vera í sex daga, en Biggi og fjölskylda bauð mér að vera lengur svo ég sló til og verð hér í viku i viðbót, að æfa með Bigga. Það er alveg frábært og eiga þau inni hjá mér stóran greiða. Aðstæður hérna eru fínar, það er ennþá svolítið vor, þeir tala um að allur gróður sé um 3 vikur eftir á venjulega, en þetta er samt miklu betra en á Íslandi. Þannig að ég fæ bara sent páskaegg að heiman og held páskana í Luxemborg. flott er.

jæja læt þetta duga í bili

kv valli


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 16:39:21 / valligolf

Thyskaland

Komidi sael og blessud

Eg og Oli erum herna a netkaffi i baenum Koblenz, rett hja vellinum sem vid spilum a.

Vollurinn sem vid spilum a er rosalega flottur, hann liggur vid Rin og er i finu asigkomulagi midad vid hvernig arstidin er buin ad vera herna undanfarna daga. Greenin eru med svaka landslag og eru i finu standi.. Teigarnir herna eru their bestu sem eg hef sed a aevinni.

Eg spiladi i dag a 87, svoldil skita en thad er svona, fyrsti hringurinn sidan i september, fyrir utan aefingahringinn. Tad sest ad madur er i engu spilaformi, med litid touch fyrir lengdum. Eg er samt sattur med nokkra hluti en sidan voru thetta mest megnis sprengjur inn a milli og thetta fer allt saman i reynslubankann, eg stefni samt a ad gera betur a morgun. Herna er buid ad vera fint vedur, svoldid kalt i dag, kom meira ad segja haglel a einni holunni. Annars er oll umgjord sem glaesilegust og er thetta rosalega skemmtilegt thott ekki hafi alveg gengid sem skildi i dag.

A laugardaginn tokum vid lest til lux ad hitta Bigga, thad var rosa gaman og baud hann og Beta okkur Ola i rosa flottan mat, sidan kom Biggi med okkur ad spila daginn eftir, vid aetlum sidan aftur til theirra thegar motid er buid.

Endilega latid heyra i ykkur,

kv Valli


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 21:54:33 / valligolf

Þýskaland

Ohhhhh, var búinn að skrifa eitthvað rosa sniðugt og þá fer internetið í fokk, en jæja í fyrramálið fer ég til Þýskalands að hitta Óla Má og keppa  í golfi.

www.epdtour.org þarna getið þið fylgst með skorinu

Ég kem síðan með ferska ferðasögu þegar ég kem heim

kv Valli


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 20:46:46 / valligolf

Nýir tímar nýtt fólk

Ég er orðinn rosalega þreyttur á að þurfa að taka rútu heim úr skólanum, vá hvað það er leiðinlegt, ég get varla beðið eftir því að byrja aftur í MK, eða svona næstum, byrjum á því að hafa það gott í sumarfríinu og síðan verður fínt að fara aftur í MK.

Talandi um sumar að það er alveg ekki nema 9 dagar í að ég leggi land undir fót og skelli mér til Þýskalands. Það verður snilld, get ekki beðið, ég skrifa örugglega nóg um það þegar að ég verð kominn heim, og jafnvel eitthvað áður. En það vantar samt aðeins upp á hitastigið hérna heima til þess að maður komist í smá vorfíling, þetta helvítis frost, maður er búinn að fara svoldið mikið upp í Bása síðustu daga og váááá það er kaalt, með glamrandi tönnum.

Jebbarí, fékk að vita próftöfluna mína á mánudaginn, ég er búinn í prófum fimmtudaginn 11. maí, alger snilld að vera búinn svona snemma.

Jón Arnar Magnússon kom í heimsókn í akademíuna í gær, og vá ég er með harðsperrur, hann var að láta okkur gera einhverjar ofur æfingar sem frjálsæfingarfólk gerir  og ég finn þokkalega vel fyrir því. Síðan kom hann Guðjón Bergmann jóga gúrú í morgun, hann kemur alltaf reglulega og teygir á skönkunum á manni, það er alveg helvíti fínt. Þessi akademía kemur nefnilega alveg helvíti vel út, góðir þjálfarar og góð aðstaða, en það er eitthvað sem vantar uppá með skólann til þess að maður sé að nenna þessu til lengri tíma.

Að lokum vil ég votta honum Vigni samúð mína, að missa einhvern svona nákominn er hræðliegt, ég samhryggist innilega og bið fyrir því að Pétur sé kominn á betri stað. Megi guð vera með Vigni og fjölskyldu hans. Hvíldu í friði Pétur.

kv Valli


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 21:38:41 / valligolf

Hugsanlega

Já það held ég nú, það hlýtur að vera kominn tími á blogg, ég er ekki búinn að blogga í heilan  mánuð og það er orðið svo langt síðan að ég man ekki hvað ég er búinn að gera síðan síðast. Eða svona næstum. Þetta hefur meira og minna verið golf, skóli, golf, læra sofa. Síðan hefur maður kannski gert eitthvað sniðugt inn á milli.

Eins og um síðustu helgi að þá fór ég á snjóflóðanámskeið í Bláfjöllum, það var ruglað gaman, lentum meira að segja í alvöru snjóflóði, það fékka alveg hjartað til að slá auka slög, en sem betur fer var það ekki stórt. En talandi um hjálparsveitina að þá er ég orðinn starfsmaður hjálparsveitarinnar, það er helvíti fínt.

Jebb og svona að lokum að þá er ein sú furðulegasta keppni sem ég hef heyrt um í gangi á xinu. Það er keppni um hver að stærstu mömmu Íslands. Ég á virkilega erfitt með að ímynda mér það samtal. Ég sé ekki hvernig menn hafi það í sér að fara og biðja mömmur sínar um að kom a með sér og láta vigta sig. Hehe

Segjum þetta gott í bili - enda er Robbie Fowler búinn að setjann fyrir Liverpool þannig að Liverpool hlýtur að vinna einn bikar í ár.

kv Valli - vinsamlegast commentið annars fer maður að hætta þessu helvíti.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 17:27:17 / valligolf

Kæra dagbók

Komið sæl

Valgeir hatar Elísabet auglýsingar í útvarpi, Valgeiri finnst Elísabet auglýsingar í útvarpi vera einstaklega niðurdrepandi og hann skilur ekki hvort að einhver hafi áhuga á að tryggja sig hjá svona félagi. En án gríns þetta eru vafalaust verstu auglýsingar sem búnar hafa verið til. En þær bestu eru án efa Lottó auglýsingarnar með Jóni Gnarr. Sá maður þarf bara að standa og brosa og maður deyr úr hlátri.

Já svona er nú það, ég átti afmæli á mánudaginn, jibbí strákurinn orðinn 19 ára, bara eitt ár og þá má ég með lögum drekka mig blindfullan(eins og gerist hverja einustu helgi ;) ) Ein skrýtin pæling, ég má taka lán, vera með visa kort og yfirdráttarheimild á kortinu mínu og ég má gifta mig, en nei, mér er ekki treystandi að fá mér einn bjór. Spes. Annars var dagurinn svosem ósköp venjulegur mánudagur. Skóli, æfing, borða og svo aftur æfing. Hressandi!!!

Í gær skrapp ég á söngvakeppni MK, og hún Greta Mjöll tók þessa keppni og rúllaði henni upp, frábært hjá henni, bíð spenntur eftir að sjá hana í sjónvarpinu!!

Skólinn í dag var skrýtinn, æfing og einn tími og svo heim, tók næstum lengri tíma að keyra í skólann heldur en að vera í honum, hehe. Síðan skrapp ég og sótti bílprófið mitt - nú gildir það til ársins 2057, eða þegar ég verð orðinn sjötugur, vá það er langt, pæling hvar maður verður staddur þá í lífinu....humm. En nei  takk nenni ekki að hugsa svo langt.

Ég er eiginlega bara farinn að hugsa um sumarið, það verður nóg að gera þá. En ég er að fara að keppa útí Þýskalandi í apríl. Á móti sem kallast Jakobsberg Classic, það verður örugglega rosa lífsreynsla, fyrsta sinn sem ég keppi í útlöndum og það á atvinnumótaröð. hehe stemning fyrir því. Síðan fer klúbburinn til Þýskalands í Maí að æfa, sem verður bara snilld eins og venjulega. Og að lokum er planið að fara í útskriftarferð til Búlgaríu í ágúst með MK. vaaá, ég sé fram á það að verða blankur næsta haust. Öll fjárframlög eru vel þegin. Ef þið hafið áhuga á að styrkja mig sendið mér e-mail á migvantarpening@hotmail.com heheheh.

Þá segi ég þetta gott

kv Valli -


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 18:35:30 / valligolf

nineteen.....sweet

Komið sæl gott fólk

Hvernig væri nú að skrifa hvað hefur verið að gerast undanfarna daga, á Föstudaginn náði ég þeim merka áfanga að skrifa undir hjá Hjálparsveitinni, já þá fékk maður loksins lykil að húsinu og sinn eigin skáp, gaman af því, núna er maður ekki lengur einhver nýliðadrusla, hehe. Síðan tók við innflutningspartý hjá Heiðari, jamm mikið gaman þar, þó meira gaman hjá fleirum en mér.

Síðan var bara vinna og fjör hjá mér. Er núna að aðstoða hann sölva með básinn hans í Kolaportinu, vá þetta er alveg heill þjóðflokkur út af fyrir sig sem verslar þarna, maður sér alltaf sama fólkið og mest megnis stórfurðulegt, en það er bara gaman af því hehe.

Kíkti líka á golfsýningu um helgina en ætla ekki að skrifa um hana því að um 90% þeirra sem lesa þetta blogg hafa ekki hugmynd um hvað ég er að tala um eða finnst þetta mjög leiðinlegt, hehe, ég hef einstaka sinnum "reynt" að verja það að æfa golf t.d. útí hjálparsveitarskemmu, en nei það er betra bara að sleppa því. hehe

Segi þetta gott í dag, farinn að halda upp á daginn.

kv

Valli


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 17:12:39 / valligolf

váááá....þreyttur

Góðan daginn

þokkalega kominn tími á blogg,  bloggaði síðast einhvern tímann í síðasta mánuði!!!

ég ætla að skrifa um eitt, þegar ég er að keyra að þá á ég til að steingleyma hvert ég er að fara, ætla kannski niður í búð í sölunum en allt í einu er ég kominn hálfa leið upp í MK, vó ég er stundum voðalega utan við mig þegar að ég keyri, einu sinn var ég að fara upp í bústað til frænda minna, síðan eftir smá tíma uppgötvaði ég þegar ég var hættur að kannast við hvar ég var að ég hefði keyr svona 4 km framhjá afleggjaranum þar sem ég þurfti að beygja, vúps. Gaman af því

Þetta er samt búin að vera helvíti góð helgi. Byrjaði á að fara með fólki úr MK upp í bústað á föstudaginn, það var bara helvíti fínt, mikið af rugli, en það gerir þetta bara skemmtilegt. Síðan á laugardaginn var það bara stöðuprófið í hjálparsveitinni, byrjuðum kl 6 í gærkvöldi og kláruðum kl 6 í morgun, og gekk það bara nokkuð vel, vonandi nóg til að þeir hleypi manni inn í sveitina.

Og eitt að lokum, vááááááa hvað Sylvíu Nótt lagið er mikil snilld, áfram Til hamingju Ísland, þetta lag á eftir að taka eurovision í rass!!!!

ég segi þetta gott í dag.

kv Valli


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4